Minn tími er komin haha

Laufey litla

12.02.2008 12:32:48 / laufey

Jæja gott fólk......

..... er ekki komin tími á smá blog þótt ég sé nú svo máttlaus í höndunum eftir æfingu að ég get varla skrifað í tölvunni....hélt að ég væri að deyja áðan hehehe:$ þetta tók ekkert smá mikið á.  Liggur nú við að ég sofni nú bara hérna í sófanum :haha: en það þýðir nú víst ekki.

Guð, ég voni að ég fái gott símtal á föstudaginn, að konan hringi nú í mig og segi jæja, stúlka góð þú ert búin að fá íbúð. I need a HOME, mig langar í heimili aftur. Mér finnst eins og ég geti ekki sett rútínu almennilega á okkur öll hér.  

Það væri kannski ágætt að eignast mann hehe 8|  einhver sem stæði nú með manni í þessu, nei, held að ég sé bara of erfið ;) greinilega skiluru!! Svona er nú bara lífið :haha: Skil ekkert í þessu, eins og ég er nú yndisleg, er þaggi annars??? 8| HAHAHA nei nei, segi nú bara svona, ég er nú öll að koma til, hressari heldur ég hef verið, kannski í sé bara að verða ég sjálf aftur hmmmmm það væri nú kraftaverk útaf fyrir sig híhí.....

Heyrðu, Fríða litla fallega (Áróra Kristín) viltu vinsamlegast koma í heimin, það er allir að bíða eftir þér sérstaklega hún mamma þín hún er nú svo uppgefin, vertu nú góð við hana og láttu sjá þig...svo hún tapi sér ekki gjörsamlega greyið stúlkan...koss koss knús knús :haha:

Allt er nú agætt að frétta af drengjunum mínum. Stefán er byrjaður á sjálfstyrkinganámskeið sem er nú frábært, vonandi hjálpar það honum. Daníel, hmmmm, hann er nú að standa sig ágætlega en þið vitið nú að hann er nú að verða 17 ára þannig við hverju á mar að búast ;) 

Jæja, er nú búin á æfingu í dag en ætla að drífa mig í sund.... Kveðjós mí amígós

Endurhæfinga konan :haha: 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 15:06:49 / laufey

Brjálað að gera......

allt á fullu í pökkun og þrifum 8| og ekki að fara vel með bakið á dömunni. Þetta tekur enda híhí veit ekkert hvað ég á að gera við allt þetta dót..... kemur í ljós.

Lífið er eitthvað svo frábært þessa dagana, það er greinilega að virka það sem ég er að gera. Guð sé lof. :haha: komin tími á þetta, held að allir séu nú sámmála því er það ekki hehehe

Daníel voða góður þessa dagana, greinilega eitthvað sem hefur komist í gegnum hausin á honum eftir síðasta fyllerí hjá honum og bull. Vona bara að það haldi áfram. Engir krakkar að koma inn, tók nú alveg fyrir það. Var orðin þokkalega þreytt á þessu stanslausa áreiti, síminn, dyrasíminn, ráp inn og út enda hefur verið mjög rólegt á heimili mínu þessa dagana.

Jæja, best að halda áfram.... sjáumst...heyrumst... eða eitthað ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

20.10.2007 12:47:09 / laufey

Mikið að gerast þessa dagana!!!

Hallo hallo,

Jæja, það er búið að vera mikið að gerast hjá mér upp á síðkastið. Ég er búin að fá íbúð hérna í Árbænum, Brekkubæ sem er í raun ennþá nær skólanum hehe. Hélt að ég kæmist varla nær ;) Ég fékk líka bréf í síðustu viku frá Velferðaráð sem samþykkir að ég fá undanþágu til umsóknar á félagslegri íbúð/sérstakar húsaleigurbætur frá launum mínum á síðasta ári. Fékk sem sagt synjun á staðnum í byrjun vegna of há laun á síðasta ári. Þannig að ég er að pakka á fullu og Daníel að mála herbergi sitt SEM VARÐ AÐ GERAST HAHA Íbúðin er líka í rústi, kassar út um allt og ég nenni ekki að reyna að þrífa í þessu drasli 8| sem er nú ekki skrítið.

Ég held að ég sé loksins að ná jafnvægi andlega :haha: fór til náttúrulæknis um daginn og fékk ýmsar upplýsingar sem ég þurfti á að halda. Ég er farin að taka mikið af vítamínum og finnst ég ekki fá sykurfall lengur, það er eins og líkamin sé að ná einhverju jafnvægi sem er æðislegt. Hef ekki fengið svona svima-svitakast í úm ca þrjár vikur og það eru frábær framför. Mér finnst ég einnig vera að lagast eitthvað andlega. Hef verið mjög jákvæð undanfarið, er búin að reyna að takast á við allt á jákvæðan hátt heldur en að dettur niður að því mar í raun höndlar ekki meir. Ég hef gert mér meira og meira grein fyrir því að ég er mjög sterk kona með mjög sterkan karakter og ég get allt. Ég hef verið að breyta mörgu í kringum og þar af leiðandi lést og breyst andlega sem er meiriháttar enda líður mér betur. Maður verður að gefa frá sér jákvæða strauma ef þú vilt fá jákvæða strauma tilbaka. Auðvitað kemur að því eftir ítrekandi áföll í lífinu að fólk einfaldlega þoli ekki meir og dettur en það kemur aftur jafnvægi á, tekur bara tíma. Pabbi hans Daníels kom hérna í gær og tók meiri segja eftir því að ég hef lagt af, frábært þegar fólk tekur eftir þessu, þá veit mar að mar er að gera rétt.

Lífið er stöðug vinna, í sjálfum sér, í samböndum sínum, í vináttum og með börnin sín en allt er hægt með jákvæðum hugsunum. Ég hef lært ROSALEGA mikið um sjálfa mig síðast liðin tvö og hálf ár, gott og slæmt, en ég þurfti á því að halda. Ég veit í dag að ég er frábær mamma, góð vinkona og einfaldlega góð manneskja. Það gera allir mistök í lífinu en það þýðir ekki að mar sé endanlegan dæmdur á slæman hátt, þetta er bara vinna.

Jæja, held ég sé búin að blaðra nóg hehe Hugsið um á hverjum degi hvað þið eruð þakklát fyrir ekki það sem þið eruð ósátt við .... koss og knúsar my friends :lol:


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 10:06:42 / laufey

Ný stefna.....

hallo gott fólk.....

Nú er komin ný stefna hjá mér í lífinu. Ég er hætt að vinna hjá Ölgerðinni. Nú er stefnan að byggja upp sjálfa mig andlega og líkamlega. Finna út úr þessum bakvanda o.fl. Það er mjög skrítið að vera ekki að vinna. Ég er nú samt að bera út mbl með frænku minni á morgnana. Týpist fyrir mig, gæti nú ekki alveg hætt að vinna, mundi tapa mér einhver staðar. Það er búið að taka mig svoldin tíma að segja fólki frá því að ég sé hætt að vinna. Hef nú alltaf horft á það sem aumingjaskap en ég nú loksins búin að átta mig á því að ég held ekki svona áfram lengur eins svo ég hef gert síðustu 20 ár. Vinna eins og brjálaðingur og er ekki mikið heima. Mar verður að hugsa um sjálfa sig ef mar ætlar að geta hugsað um aðra þannig sá tími er komin hjá mér annars verð ég bara útbrunninn eftir nokkur ár og ég hef nú ekki áhuga á því.

 Uppbygging, vellíðan, hamingja!!! Það er það sem ég ætla að stefna að núna :D Vera til staðar fyrir drengina mína. Finna það mér finnst gott og gaman í lífinu ekki það sem öðrum finnst að ég eigi að gera 8|

Jæja dúllurnar mínar, ætla að kveðja í bili.......sí ja 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 11:22:54 / laufey

Dísus...

Jæja gott fólk, það er víst komin tími á smá blogg, er það ekki annars hehe 8| ég er nú búin að vera algjörlega tölvulaus þannig ég hef nú smá afsökun ;)

Ég er nú búin að vera föst heima núna með lungnabólgu, heavy veik skiluru, glatað :|  ég er á þvílíkum lyfjum og verkjalyfum, búin að vera svo rosalega slæm í bakinu, var í sneiðmyndatöku í morgun, sjáum hvað kemur út úr því.

Er nú að fara til læknis, ætlaði nú bara að láta aðeins heyra í mér víst ég komst í tölvu, vona að ég fái nú tölvu fljótlega sí ja :haha: 


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 12:54:32 / laufey

Jæja er ekki komin tími á smá blogg

Það gengur bara vel í nýju vinnunni, farin að kynnast konunum ennþá betur enda er mér farið að líða miklu betur.

Var veik núna í vikunni, ælupest og niðurgang, rosa gaman eða þannig. Var gjörsamlega að deyja enda léttist ég nú á meðan, eina góða við þessa pest. Þarf bara ekki að lýta á góðu hliðarnar 8|

Daníel minn er nú búin að lagast alveg rosalega. Voða lítið vesen á honum núna, engar heimsóknir frá lögreglunni þannig þetta er hið besta mál. Stefán lítið heima núna, mikið hjá pabba sínum með bróðir sínum Elís sem er auðvitað líka í sumarfríi frá skólanum. Hann er einmitt að fara til Ameríku 27 júní og verður í næstum mánuð. Gaman fyrir stráksa. Verður auðvitað mjög skrítið fyrir mig, hann hefur aldrei verið svona lengi frá mér. Hefur alltaf komið til mín mínar helgar þegar hann er hjá pabba sínum á sumrin. Þetta verður nú samt mjög gott fyrir hann, hann er nú svo háður mér. Hefur nú samt aðeins lagast. Hann fór með bræðrum sínum og ömmu sinni í sveitina í síðustu viku og var orðin lítið í sér á miðvikudeginum, sakna svo mömmu minnar. Stella talaði hann nú til sem er frábært, oftast hringir hann í mig og ég þarf að tala hann til. 

 Dúllan mín auðvitað komin heim, thank god, saknaði hans ekkert smá mikið. Var þokkalega erfitt verð ég nú að viðurkenna. Hann er nú líka búin að vera veikur í þessari viku greyið og búin að vera brjálað að gera hjá honum í vinnunni þannig mikið þreyttur. músin mín :lol:

Ætla nú ekki að hafa þetta lengra í bili, sendi ykkur öllum góða strauma og vonandi sé ég sem flest ykkur á afmælinu mínu 35 skiljið þið, gömul geit en ung í anda 8|   sí ja


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.05.2007 11:41:19 / laufey

Svona er lífið.....

Byrjaði í nýju vinnunni 16 mái og það gengur nú alveg ágætlega. Eins og fólk veit nú sem þekkir mig vel þá er ég nú alltaf á varðbergi gagnvart nýju fólki. Það á eftir að taka mig smá stund að kynnast þeim, vonandi gengur það bara vel. Misjafnir straumar sem ég fæ frá fólki en vonandi er þetta bara ég hehe, eins og það er nú oftast.

Sakna mannsins míns GEÐVEIKT MIKIÐ, bíð eftir að hann komi heim. Hann átti að koma heim 7 júní en er búin að vera að tala um að koma heim viku fyrr sem er nú eftir þrjá daga og vonandi gerir hann það en ég er ekki búin að fá það staðfest ennþá þannig ég bíð bara :(

Hann Daníel minn, já, hann hefur nú lagast aðeins upp á síðkastið. Ég og pabbi hans töluðum við hann síðasta mánudag mjög alvarlega og hann fór á æfingu á föstudaginn og til pabba síns um helgina sem er mjög gott mál. Gefa mömmu smá frí. Svo frétti ég í gær að hann hitti Hrefnu um helgina og hún spjallaði mikið við hann frá vinkonu sjónarmiðinu sem er mjög gott líka. Minnti hann á hvað hann hefur það nú gott og hvað hann á nú yndislega fjölskyldu sem stendur á bakvið hann. Það er ekki allir sem eiga svona skemmtilega og sanngjarna foreldra. Mér fannst þetta alveg frábært, hann þurfti að fá þetta annars staðar frá ekki bara mamma leiðinlega að skamma hann :haha: Hrefna hefur alltaf náð vel til hans þannig mér finnst þetta bara æðislegt ;)

Hann Stefán minn, hann er nú alltaf sama músin þessi elska. Ótrúlegt samt hvað honum leiðist nú alltaf, alveg sama hvað hann hefur nú nóg að gera. Vonandi er þetta bara eitthvað tímabil eins og hann er nú með stórt hjarta og getur verið alveg yndilegur, hefur svo mikið að gefa. Elsku karlinn minn.

Jæja, held að ég ætli nú að láta þetta duga í bili, heyrumst...sjáumst... bæjó 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 12:42:39 / laufey

Jæja, gott fólk...

Þá eru einungis fjórir dagar þangað til ég fer að vinna aftur, HLAKKA MIKIÐ TIL!! Það verður frábært að fara að vinna, er orðin þokkalega þreytt á því að hanga heima. Er nú samt búin að vera mjög dugleg að æfa núna og alveg þokkalega dugleg á Herbalife, fékk nú samt smá sykurfall í gær þannig læddist í tvö súkkulaði, Rósa frænka var nefnilega að koma í heimsókn. Ætla bara að taka Yellow töflurnar með öllum máltíðum núna og vonandi heldur það sykurmagninu í blóðinu í lagi þannig ég fái ekki svona sykurþörf aftur.

Hey, ekki gott, Salem Slim ekki til í ÁTVR og þá ekki til í neinum sjoppum núna. Er farin að reykja bláan Capri í augnablikinu hehe. Keypti fyrst Salem Light og er ekki að virka, þær eru of stuttar og of feitar hehe.

Alltaf nóg að gera á þessu blessaða heimili mínu með þennan ungling. Það verða engir unglingar hér inni þessa viku, er alveg búin að fá nóg af þessu rápi og þessu fyllerí á þessum drengjum. They are not inn my good books at the moment. Daníel fór ekki til pabba síns um helgina, allur 10 bekkurinn var að fara á fyllerí á föstudaginn, halda upp á að samræmdu prófin séu búin. Hmmm það var nú bara laugardagskvöldið líka. Mig langar að fá að eiga heimili mitt útaf fyrir fjölskylduna þessa viku og ekki Félagsheimili Laufeyjar hehe.

Jæja, ætla að fara að gera eitthvað hérna, heyrumst ....... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 11:54:27 / laufey

hello hello

jæja, best að blogga eitthvað, er búið að vera að skamma mig hehe.  Byrja í nýju vinnunni í næstu viku, THANK GOD, því ég er alveg að fara að snappa á því að vera svona mikið heima. Er að fríka út hérna, þarf að fara að hitta fólk áður en ég verð farin að tala of mikið við sjálfa mig eða öskra á unglinga. Eina sem ég get sagt við ykkur er bíðið þið bara, það er ekki grín að eiga við ungling. Þeir geta gert mann alveg geðveika takk fyrir.

Sæti kærasti minn er að fara út á morgun :( ekki gaman, hann verður farin í fjórar vikur. Ég á eftir að sakna hans geðveikt mikið. Er líka búin að vera voða sad síðustu tvo daga. Búhú ekki gaman en svona er nú bara lífið stundum. Þarf bara að hafa geðveikt mikið að gera þá líða kannski dagarnir hraðar.

Stefán brosir meira þessa dagana guð sé lof, held að drengurinn sé með skammdegisþunglyndi eða kannski er þetta bara tímabil sem líður hjá, mar veit aldrei.

Jæja, ætla að drífa mig á æfingu, sjáumst!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 21:55:52 / laufey

'Otrulegt hvad thessir unglingar geta gert....

Jaeja, er ekki 'a tolvu sem er med 'islenska stafi thannig thid verdid ad afsaka stafina gott f'olk. Hann eldri sonur minn er ad gera mig gjorsamlega gedveika. Graff, og margt fleira sem geta nu gert utaf vid foreldra. Eins og hann er nu buin ad vera godur strakur hingad til svo er breytt um felagsskap og allt fer til fjandans........ Veit stundum ekki hvad eg a ad gera thessa dagana. Thad er svo margt annad ad gerast ad thetta fer nu ekki vel i mann en svona er nu bara lifid..... vonandi breytist thetta nu fljott annars verdur hann nu bara sendur erlendis i sumar i herskola i nokkra manudi, tek ekki vid thessu lengur. Nuna er bara komid nog, mamma buin a thvi og tekur bara ekkert vid meiru. Thad er bara annad hvort eda thessa stundina. Annad hvort gerir hann eins og mamma segir eda hann verdur sendur beint ut um leid og samraendu profin eru buin. Engin vinahopur til ad leita til, tolvan tekin thannig ekkert verdur tha mikid um samskipti, aetla ekki ad taka vid thessu eins og hefur gerst hja morgum foreldrum. Thetta er einfaldlega bara buid. TAKK FYRIR Jaeja, buin ad letta adeins a hjarta minu, heyrumst fljott, kvedja, litla feita!!!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 12:57:26 / laufey

Spurning hvað mar á að gera.....

Jæja, veit ekki alveg hvað ég á að gera í málinu. Erfitt að vera í vinnunni eins og er. Þeir eru eitthvað að tapa sér þessa dagana og veit ekki alveg hvað ég þoli þetta lengi. Spurning hvort mar eigi nú bara að fara að leita sér að annari vinnu. Nenni ekki þessu bulli miklu lengur.  Jæja kemur bara í ljós. þurfti bara aðeins að létta á mér. Heyrumst.

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 12:46:08 / laufey

Best að láta heyra í sér aftur....

Ekkert smá mikið búið að ganga á upp á síðkastið. Fór til Róru skvís í innflutningspartý og já var ÓGEÐSLEGA FULL. Ekki góð upplifun daginn eftir, þynnka dauðans. Hringdi nú og baðst afsökunar á hegðun minni :^) dísus, vonandi verð ég nú aldrei svona full aftur.

Daníel minn búin að vera að gera mömmu sína geðveika, tekin af löggunni og ég veit ekki hvað en við áttum nú gott samtal í fyrra kvöld og þetta er strax byrjað að lagast. Unglingar þið vitið, hormónanir einhver staðar í rassgati. Enda er ég nú líka þokkalega þreytt andlega.

Alltaf jafn brjálað að gera í vinnunni, aldrei ró og friður. Mætti vera svoleiðis bara í svona eina viku og þá yrði ég sátt. Þarf að komast í frí helst til útlanda í sólina og slappa af.

Jæja, ætla að fara og fá mér hádegismat. sí ja .....................


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.03.2007 16:08:25 / laufey

Jæja, þokkalega búið að skamma mig fyrir að blogga ekki neitt .....

Svona er þetta nú bara. Búið að vera geðveiki í vinnunni síðan um áramót. Uppgjör 2006 skiluru. Svona er þetta bara.

 Lífið líka búið að vera svoldið skrýtið þessa tvo mánuði. Er búin að vera rosalega þung þannig kannski bara best að mar hefur ekkert látið heyra í sér. Það er nú byrjað að birta og þá birtir yfir mér ;)

Stefán minn varð 10 ára 1 mars, elskulega krúttið mitt. Komin í tveggja stafa tölu. Þetta er voða skrýtið. Mar ekkert krýli lengur heldur stóra drengi, einn að verða karlmaður eiginlega. Ótrúlegt hvað þetta er nú fljót að líða. Veit  stundum ekki hvert árin fóru.

Jæja, þarf víst að halda áfram að vinna. Vonandi heyrist nú fljót í mér aftur haha


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 11:16:36 / laufey

Jólahlaðborð í kvöld ;)

Jæja, þá er komið að jólahlaðborðinu í vinnunni. Förum í Skíðaskálan í Hveradölum, hlakka til að borða mikið. Þetta hlýtur að vera bara gaman.

Krúttið mitt fór út í morgun :cry: strax farin að sakna hans búhú. Þetta reddast hehe jólin og svona. Reyni bara að hugsa sem minnst um það en samt glatað skiluru.

Styttist óðum til jóla og ég ekki ennþá búin að kaupa eina jólagjöf hehe. Redda þessu núna eftir helgi.

Er ekki að nenna að vinna í dag, var í fríi í gær og hefði nú bara átt að taka frí í dag líka.

Jæja, best að reyna að sýnast að vera gera eitthvað


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 09:56:39 / laufey

Skil ekki alveg hvað er í gangi...

....furðulegt ástand í vinnunni núna.  Síðan viss maður tók við starfi hefur allt farið á allt annan farveg en hefur verið hingað til og búið til þvílíku vandræðin niður í vinnu. Ég fæ ekkert nema kvartanir og þessi einstaklingur lýgur svo rosalega, hann er þvílík naðra. Þetta er ömurlegt og lendir þetta rosalega mikið á mér. Hefur áhrif á alla sem vinna þarna, ég er einfaldlega alveg að fá nóg af þessu. Veit ekki alveg hvað ég ætla að gera í málinu, kemur nú ýmislegt í ljós eftir helgina vonandi.

Jólin alveg að koma, ég er nú ekki ennþá byrjuð að versla jólagjafir hehe 8| veit nú eiginlega hvað ég ætla að gefa öllum þannig þetta verður ekkert mál þegar ég dríf mig í þetta. Það er bara búið að vera svo rosalega mikið að gera hjá mér að ég hef ekki haft tíma til að fara að versla. Ætla að halda mér frá vinnunni alla þessa helgi, þarf á hvíld að halda :haha:

Jæja, er með matarboð í kvöld, ætla ganga aðeins frá, heyrumst elskurnar.....


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Klukkan